vangaveltur... eða mest bara röfl
Beggu- og Andramyndir
18.03.2008 20:56:02 / fatou

ný síða

ný síða hefur litið dagsins ljós:)
www.chicas.bloggar.is

tékkit þar héðan í frá;)
kv, chicurnar


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 20:12:03 / Begga

besta vídjó mannkynssögunar

Jimmy Kimmel svarar fyrir sig eftir að Sarah Silverman tilkynnir honum að hún sé að ... Matt Damon.
IT'S A MUST SEE!



» 5 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 18:12:31 / Begga

ég get ekki beðið!!!!

Ég verð að viðurkenna það, ég fékk tár í augun þegar ég horfði á trailerinn að Sex and the city myndinni. hahaha.. hversu aumingjalegt er það!?!

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 13:37:00 / fatou

Nýtt blogg

eigum við að skipta um blogg? í alvöru sko???
mér lýst vel á 123.is eða bloggar.is
hvað finnst ykkur?

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 10:27:52 / Begga

Hey Jude


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 18:54:14 / fatou

NEINEINEI

mér finnst bloggið okkar orðið ógeðslega ljótt og þessar breytingar hjá blog central alls ekki til hins betra verð ég að segja...
ég segi að við setjum þessa síðu okkar í make-over, hreinsum allt drasl útaf henni eða hreinlega búa okkur til nýja síðu hjá öðru bloggfélagi..
ein ekki sátt

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 17:50:01 / domi

(tekið af mbl.is)

"Bjór í belti en ekki barnið

Þegar lögreglan í St. Augustine í Flórída stöðvaði 46 ára gamla konu sem ók á rauðu ljósi sá hún að bjórkassi í bíl konunnar var vandlega spenntur í öryggisbelti. Það var hins vegar ekki barnið í aftursætinu sem var 16 mánaða gamalt.

Konan, sem ekki gat gefið neina skýringu á því hvers vegna bjórinn væri í öryggisbelti en ekki barnið, var handtekin. Hún var ekki með ökuskírteini og neitaði að gangast undir áfengispróf. "

jahá... ég veit ekki hvort ég eigi að grejna eða hlæja!

hvað haldi þið að hafi verið í gangi hér?? , endilega komið með sögu!

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 23:21:11 / fatou

ok begga

Ok Begga sagði mér að blogga þannnig að ég þorði ekki annað en að hlýða8|

Ætla að segja ykkur nokkrar vinnusögur....

Ég var sem sagt að vinna í dag og þetta er í fyrsta skipti sem ég fer að vinna eftir að útsölurnar hættu og nýjar vörur að koma og missti mig alveg við að breyta gínunum og raða uppá nýtt í búðina eftir mínum eigin smekk eins og ég er vön að gera.  Hluti af fermingafötunum voru líka að koma í dag og það var búið til svona lítið fermingahorn og fermingagluggi. Það átti samt eftir að setja upp fötin í hornið og ég auðvitað vatt mér í það og reyndi að gera þetta eins fermingalegt og hægt var miðað við það sem var komið. Síðan fannst mér gínurnar í glugganum ekki aaalveg nógu góðar þannig að ég breytti þeim líka;)

Svo leið aðeins á daginn og ég bara að vinna mína vinnu þegar einhver kona sem ég hafði aldrei séð áður kom og spurði hvort að ég hafi breytt gínunum í glugganum.. ÉG alveg: "jaaaaá.." soldið smeik...Neinei, þá var þetta bara útstillingarhönnuður NTC sem hafði gert þessar gínur og mín bara hafði tekið sig til og umturnað fína glugganum hennar!!8|8| Ég bara „sorry“ og „ég hélt að stelpurnar hefðu gert þetta“ alveg í kleinu og hún sagði að þetta væri allt í lagi, hún hefði bara verið 2 klukkutíma að gera þetta!!

En henni var held ég ekkert alveg sama því næst byrjaði hún að setja út á fermingadeildina, þessa fínu hálftilkomnu fermingadeild og ég alveg að deyja úr bömmer.:^)

En mér finnst þetta ýkt fyndið núna og ég er búin að hlæja nokkrum sinnum upphátt á meðan ég er búin að skrifa þetta blogg mitt.  Ég held líka að næst þegar hún fer að græja gluggann okkar góða þá verði hennar fyrsta verk að skipta um á gínunum!:lol:

Mér finnst líka alltaf jafn fyndið þegar fólk sem vinnur við sama fag og þið er að veifa því framan í ykkur við hvert tækifæri.. eins og þegar ég var að vinna í nóatúni þá kom reglulega ein gella að versla og þegar maður mundi ekki alveg PLU númerin á kálinu sem hún var að kaupa þá sagði hún manni það alltaf svo maður þurfti ekki að fletta því upp í bókinni alveg ýkt sátt með sjálfa sig. :lol::lol:

Við lentum nú í því um daginn að það kom kona sem vissi svo agalega mikið um tísku og spurði eina hvort að við værum ekki með reiðbuxur. Hún bara HA?! og vissi ekkert um hvað konan var að tala enda aldrei heyrt um þetta áður í tískufataverslun. Þá frussar konan út út sér: „HVA, LESTU EKKI VOUGE????“      Er fólk sem segir svona bara rosalega sátt með sig.. ef ég hefði sagt svona við einhvern hefði ég dáið úr skömm svona 2 sekúndubrotum seinna.

Og það fyndnasta er við þetta allt saman er að það sem þú sérð í Vouge núna og á tískupöllunum núna er ekkert að koma fyrr en í sumar og þar sem við búum á litla íslandi geturðu gleymt því að sjá það fyrr en í fyrsta lagi árið 2010! En sumir kaupa víst blöðun bara til að skoða myndir, ekki lesa greinarnar:)

Vonandi svalaði þetta bloggþörf þinni begga mín.. ég er farin í háttinn ......zzzzzzzzzzzzzzzz......

ps. ég biðst afsökun á ofnotkun á brosköllum


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 18:33:56 / Begga

Happy 25th!

Sætasti strákurinn í Hafnarfirði (og þó víðar væri leitað;) er víst ekki lengur strákur því hann er 25 ára gamall í dag!

 

Til hamingju með afmælið ástin min :*

 

Fyrir ykkur sem eruð ekki orðin 25 ára kostar bara þúsundkall miðinn í Borgarleikhúsinu!!! Það er rugl verð! (Mæli með Ræðismannaskrifstofunni eða Belgíska Kongó;)

En talandi um leikhús þá verða ALLIR að sjá Ivanov í Þjóðleikhúsinu! Það er hreint út sagt stórkostleg sýning sem enginn verður svikinn af. Og þá er ég að tala um að það er hægt að fara með ömmu og afa, 15 ára litlu systur og bara öllum að sjá þetta. Ég hef sjaldan verið jafn uppnumin af einni leiksýningu... úff.. þetta er bara flott!

Góðar stundir!

Begga

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 16:05:05 / Begga

gleðilegt nýtt ár!

┏━━┓┏━━┓┏━━┓┏★━┓
┗☆┓┃┃☆┓┃┃☆┓┃┃┏┓┃
┏━┛┃┃┃┃┃┃┃┃┃┃┗┛☆
┃┏☆┛┃┃┃┃┃┃☆┃┃┏┓┃
┃┗━┓┃┗★┃┃┗┛┃┃★┛┃☆
★━━┛┗━━┛┗━━ Gleðilegt nýtt ár!!!

Við Sigrún, Andri, Addi og Beta eyddum áramótunum á 8. hæð á Hilton hótelinu. (Takk fyrir það Beta!) Parmaskinkunni var skolað niður með kampavíni og horft á flugelda frá besta stað, enda útsýnið allsvakalegt svona hátt uppi. Vonandi voru áramótin ykkar jafn góð! :)

Annars vil ég þakka öllum liðna tíma og minnast þeirra sem kvöddu þennan heim á árinu en afi okkar Sigrúnar, Arnþór Kristjánsson, lést 29. desember og er sárt saknað. En það má gleðjast og hugsa til þeirra sem komu í heiminn en það eru krúsídúllurnar Alla Kristín, dóttir Gunnars Þórs og Írisar, Jón Frank Erlustrákur og Benedikt Írisarstrákur. Svo á Birna frænka að eiga 6. feb en ég krossa fingur að hún eigi 2 dögum fyrr :)

Vona að allir hafi haft það gott yfir hátíðirnar :* Það var frábært að hitta þá sem komust í jólaboðið í Vallarbarði þar sem Megas fór á kostum í jólatrénu... talandi um jólatréð, ég ætla að fara að taka það niður. Þetta gengur ekki lengur!


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 21:50:31 / fatou

Leiðinlegasta fólk í heimi

Ég dýrka þegar maður er bara staddur í sínu daglega lífi, gera sínu hversdagslegu hluti þegar allt einu eitthvað gerist sem lætur mann fá hugmynd af snilldarbloggi. Málið er að ég var að vinna hjá Senu um jólin í einni Hagkaupsverslunum þeirra og hitti tvær leiðinlegustu manneskjur sem ég hef á ævinni hitt. Þá datt mér í hug að taka saman lista um leiðinlegasta fólk í heimi:) 

  1. Þetta sæti fá öryggisverðir án efa að eigna sér. Það er alveg með ólíkindum hvað næstum því hver einasti öryggisvörður er uppfullur af biturleika og mikilmennskubrjálæði. Það er náttúrulega þannig að þegar þú ert kominn í þennan einkennisbúning þá ertu kominn með ákveðinn völd í hendurnar en það eru bara alltof margir öryggisverðir sem fá eitthvað meiriháttar kikk út úr því fá að koma illa fram við fólk og vera dónalegir, því þeir þurfa ekkert að velta sér uppúr einhverjum afleiðingum. Þetta eru m.a. gaurarnir sem komust ekki inn í lögguna og þetta er einstaklega áberandi meðal feitra dyravarða miðað við mína reynslu.. veit ekki afhverju :S                          
  2. Starfsfólk á Subway. Ég fór að taka eftir þessum mestu fýlupúkum í heimi þegar ég var unglingur ( engin virðing!) og ég þurfti beinlínis að rífast við afgreiðslu konuna til að fá einn auka tómat á bátinn minn. Síðan er þetta búið að vera allsráðandi á öllum stöðum Subway og einu sinni var ástandið orðið svo slæmt að blaðamaður einn tók sig til og skrifaði stuttan pistil um hvað það væri ótrúlegt hvað það störfuðu margir fýlupúkar á Subway!
  3. Níski vinurinn. Hversu óþolandi er það þegar hópur af vinum er saman kominn til að gera sér glaðan dag og það þarf endilega að vera einn sem reynir að koma sér undan því að borga í því sem hópurinn hefur ákveðið að gera. Þetta er kannski ekkert áberandi en með tímanum fer maður að taka eftr þessu og þetta fer svona smám saman að breytast í alvarlegan pirring. Allir t.d. ætla að hittast á einum stað með e-ð góðgæti.. en úps!!... hann gleymdi sínu.. kemur bara með það næst;) sá hinn sami rukkar mann um hverja einustu smá krónu sem maður fær lánaða og fær jafnvel svona nett panikk köst þegar hann er ekki búinn að innheimta allar skuldir ...:lol:Sem betur fer er níski vinurinn ekki til í öllum vinahópum og vil ég taka það sérstaklega fram að hann er alls ekki sóttur í neinn minna vinahópa minna:)
  4. Fólk sem skellir á símasölufólk. Ok, þetta er kannski smá bitur sneið hérna hjá mér þar sem einhver helv.. tík skellti á mig í vetur þegar ég var að reyna að þröngva uppá hana stórglæsilegu Viku tilboði. En ég fór samt að pæla, hversu bældur, ljótur (að innan)  og LEIÐINLEGUR þarftu að vera til að geta ekki einu sinni sagt: “nei takk” eða “ég hef ekki áhuga” áður en þú skellir á fólk í símann, sem eru btw manneskjur alveg eins og þú! Svona fólki hlýtur bara að vera þvílíkt ósatt út í lífið og því kemst það hérna inn á listann.                    
  5. Konan sem kvartar yfir öllu. Þessi týpa er sótt í minn raunveruleika þar sem ég hef án efa hitt eina leiðinlegustu konu í heimi. Þetta er týpan sem á nóg af peningum og er of snobbuð fyrir allt nema sjálfa sig. Hún þarf að kvarta a.m.k. einu sinni í hvert skipti sem hún fer út að borða, hún alltaf verður að setja út á eitthvað þegar hún verslar föt sem eru ekki keypt í annað hvort Sævari Karli eða Hugo Boss og kvartar sáran yfir hægri þjónustu, of hárri tónlist við hverja einustu kassadömu sem hún hittir í Bónus ( þótt hún sé svobbuð og rík þá myndi hún aldrei týma að versla annars staðar)                                            
  6. Laumulærarar. Þessi er eiginlega tileiknkuð Pétri þar sem ég þekki engan laumulærara (svo ég viti) og hann kom með þessa hugmynd. Annars vitum við öll hvaða týpa þetta er... segist aldrei læra en fær alltaf 10 því hann er búinn að vera að svitna yfir bókunum í laumi.. frekar pirrandi týpa.

 En ef ykkur tókst að lesa þetta allt saman þá langaði mig bara í lokin að óska ykkur góðra áramóta og takk fyrir liðið ár :haha::haha::haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 14:41:13 / Begga

Kæri Jólasveinn!

Óskalistinn minn þessi jól:

Bækur

Úrvalsbók Einars Kárasonar - (Frábært safn verka eftir Einar á undarlega lágu verði)

Tvíburarnir -
Tessa de Loo

Sendiherrann - Bragi Ólafsson

Postulín - Freyja Haraldsdóttir og Alma Guðmundsdóttir
Óraplágan - Slavoj Zizek
Hnífur Abrahams
- Óttar M. Norðfjörð
Óreiða á striga - Kristín Marja Baldursdóttir
Úrvalsbók Halldórs Laxness - Halldór Laxness
Viltu vinna milljarð - Vikas Swarup
Fimmta árstíðin - Toshiki Toma
Gárungagap - Emil Hjörvar Petersen
Leitin að tilgangi lífsins - Viktor E. Frankl
Heilræði lásasmiðsins - Elísabet Jökulsdóttir
Zadig eða örlögin - Voltaire

Annars mæli ég með Matreiðslubók barnanna (sem ætti að heita Matreiðslubók unga fólksins!) og Tinna í Sovétríkjunum sem er fyrsta Tinnabókin sem kom út.

Annað

Samlokugrill
Kanna til að hita vatn í (fyrir te)

- - - -

Já. Það er greinilegt að mig langar bara í bækur þessi jólin!

Gleðileg bókajól allir :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 16:01:53 / Begga

grillað veður maður

Eigum við eitthvað að ræða veðrið síðustu nætur? Ég held að Sigrún finni lítið fyrir þessu þarna í mýrinni í Garðabæ en Fatou og Domi Hafnfirðingar.. eru þið að DJÓKA með þetta veður!!! Við Andri vorum svefnlaus í nótt enda lætin rosaleg! Veðrið hamaðist á grillinu á svölunum eins og fermingardrengur á trommum... ekki falleg hljóð! Við þurftum á endanum að fara út á svalir kl 4 í nótt og taka grillið inn! Þá var vindurinn að opna og loka því með tilheyrandi skellum og flestir í hverfinu vaknaðir .. :/ Ég verð að segja að ég tók mig vel út í bol, nærbuxum og stígvélum að tipla á svölunum um miðja nótt! hahaha.. steik!

 

 

 

En annars langaði okkur Andra að bjóða í smá hitting milli jóla og nýárs! Verðum í bandi þegar nær dregur... :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 42
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Klukkan
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.